Subbulega gott

Tjahh prrrrr:P

13.03.2007 12:23:30 / Svandís

Nýtt

Blogg... farið á www.blog.central.is/svandis_

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 15:14:49 / harpa

Harpa skarpa lemur lampa!

Jæja  mér datt allt í einu ´´i hug að blogga smá svo að þetta líti ekki út eins og síðan hennar Svandísar! Ég er sko að pæla hvort við Subbz ættum ekki að fara að taka okkur á og hittast svolítið! Ég meina þetta er nú orðinn full langur tími síðan við hittumst allar í einu!

En hvað eru þið annars til í að gera og hvenær??? Er það sumbl eða?? Ég er samt svo  geðveikt kúl að ég drekk bara kók eða pepsi!

En æj ég er lélegur bloggari bæjó!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 11:58:14 / Svandís

ég lofaði lofaði lofaði Vildísi

1.Þekkirðu mig persónulega?

2.Hvað finnst þér um mig?

3.Langar þér að kynnast mér betur?

4.Myndirðu vilja koma með mér einni á eyðieyju í viku?

5.Ef þú mættir bara taka 3 hluti með þér á eyðieyjuna, hvað myndi það vera?

6.Hvað myndirðu gera ef þú værir fastur/föst í lyftu með mér?

7.Ertu með tattoo eða piercing?

8.Myndirðu gráta ef ég myndi deyja?

9.Hver er versti kækurinn þinn?

10.Hvað minnir þig á mig?

11.Myndirðu verja mig ef einhver væri að níðast á mér?

12. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þér á móti?

- Svandís að fara í mat núna


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 08:11:52 / Svandís

Hvaða orð getur merkt þetta allt?

- Pappír

- Að keyra einhverjum eitthvert

- Flott kona

 It's easy.. to easy


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 18:19:52 / Svandís

Helgin í eggjaskurn

Ég fór norður á Sauðárkrók síðustu helgi aldrei þessu vant.

Ég lagði ein af stað á föstudeginum á Justin með kasettuna í tækinu (sem ég hlustaði á alla leiðina by the way) og svo eftir 362 kílómetra, eitt prins póló, svala og klósettstopp var ég komin í ástkæra skagafjörðinn.
Dreif mig til Dóra, Jónínu og Brynjars þar sem ég fékk að vera um helgina og þar beið mín ólafshúspizza nr.88 sem er náttlega bara best 8)  

Seinna um kvöldið hitti ég svo Eddu Hlíf, drifum okkur á rúntinn en eftir 5 mínútur var greinilega búið að fréttast af manni og Mikki hringdi og bað okkur að koma og keyra nokkrum fylliröftum niður í bæ. Ég náði í bílinn minn og við fórum á 2 bílum til að ná í þá.
Það var komið inn um dyrnar, gluggana og ætlað í skottið en þar sagði ég nei. Svo skelltum við okkur á Kaffi Krók. Þar var rífandi stemming eða um 8 gamlar manneskjur að hrista sig á dansgólfinu. Þannig að við kíktum á Mælifell en þar var þetta verra, heilar 2 gamlar hræður á dansgólfinu.
Og um hálf tvö leytið nenntum við þessu ekki lengur og skutlaði ég Adda P. Mikka og Jón Hauk heim og fór svo sjálf heim að sofa.

Laugardagurinn fór í heimsókn í sveitina, rúnt og aðsjálfsögðu varð maður að taka einn hring í gamla góða okur Skaffó.

Um kvöldið fór ég svo heim til Adda P. þar sem að hann, Mikki, Binni, Jón Haukur og Simmi voru. 
Ég er ekki í vafa um að ég hafi tapað nokkrum heilasellum þennan tíma sem ég var með þeim. Við horfðum á nokkur brot úr japönskum teiknimyndum sem einkenndist af steypu og meiri steypu en síðasta myndbandið toppaði þó allt.. japanskt teiknimyndaklám!

"Rape me"

"Who let the dogs out"

"The first cut is the deepest"

Já eftir þá geðveiki drifum við okkur á Kaffi Krók og það var nú aðeins skárra en kvöldið áður. Strákarnir voru nú samt nokkuð ölvaðir og má nefna að ég var lamin með skó, það var káfað á mér af stelpu og sest á mig. Skemmtilegt kvöld ;)

Sem betur fer þurfti ég ekki að keyra ein heim, hann Binni kom með mér og skemmtum við okkur konunglega á leiðinni heim.
Við komumst einnig að að fólk er ekki rosalega vingjarnlegt.. nema þessir 5 ;)

"Wanna play chicken fucker"

hehe.. en já það er alltaf gott að koma í skagafjörðinn, þó maður komi ábyggilega alltaf skemmdari til baka.


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 11:15:44 / Svandís

Big News People

Getiði hver er kominn aftur á markaðinn!!!!!

ójá enginn annar en súper hönkinn and my favorite actor and jackass.. Johnny Knoxville!!!

Núna er bara spurning um hvort að maður ætti ekki bara að skella sér til útlanda og reyna að hitta á kappann ;)

 
ég segi bara úff.. GRRRR


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 16:37:42 / Svandís

strákarnir okkar stóðu sig vel en ekki ég

Í gær komst ég að hvers vegna ég horfi ekki á íþróttir!!

Handbolti er eiginlega eina íþróttin sem ég hef nennt að horfa á og virkilega haft gaman af, og leikurinn í gær toppaði allt í spennu held ég!
ég var orðin svo spennt að æðarnar þöndust, hjartað sló á gífurlegum hraða, blóðið rann á ótrúlegum hraða í gegnum líkamann og ég öskraði, æpti, hoppaði og barði í borð.
Meira spennandi leik hef ég aldrei séð og ég var algjörlega að fara úr límingunum, EN svo komu endalok leikjarins og danirnir þurftu endilega að skora á síðustu sekúndunum og ég var gráti nærst.. ég þurfti bókstaflega að halda aftur að mér svo ég myndi ekki bara leggjast upp í rúm og grenja eins og lítill krakki sem fær ekki nammi... vonbrigðin voru svo mikil!
en í staðinn fyrir að grenja fór ég bara í fýlu.. í fýlu við dani og allt sem tengist danmörku.. fór að hugleiða afhverju ég bjó í þessu landi og  ég bjóst alveg við að fá símtal frá Rasmus eða Jesper eða bara einhverjum dana sem ég þekki að monta sig á sigrinum.. bara svona til að nudda smá salti í sárið!

en eins og þið sjáið þá á ég greinilega ekki að horfa á svona sport... ég lifi mig svo innilega inn í þetta og vonbrigðin verða svo gífurleg að það jaðrar við þunglyndi! held að ég haldi mig frá íþróttum svona geðheilsunnar vegna!


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 22:50:05 / Svandís

Afsakið síðasta blogg..

Ef ég ynni margar milljónir í lottó, ef ég ynni 100 þúsund krónur á mánuði í 10 ár á launamiða eða bara ef ég myndi á einhvern hátt vera rík.. væri lífið ekki miklu auðveldara. Allavega þá hugsa ég alltof oft um það hvað það væri allt miklu auðveldara að eiga skít nóg af peningum og geta gert eins og Kári Stefáns, byggt 550 fm2 hús með bíósal eða bara verið eins og allar stjörnurnar og lifað lífinu "like you own everything", samt er ég ekkert alltof viss um að lífið væri e-ð betra ef maður ætti sand af seðlum.

Ég veit samt alveg hvað ég myndi gera ef ég ætti FULLT af peningum..

nr.1 ég myndi kaupa mér hús eða réttara sagt.. ég myndi láta byggja hús alveg eftir mínu höfði og náttúrulega innrétta það eftir því með öllum lífsins gæðum

nr.2 að sjálfsögðu þyrfti mitt nýbyggða og flotta hús að hafa flottan bílskúr og þar af leiðandi þyrfti að vera flottir bílar fyrir utan húsið.. ég meina það er ekkert vit í því að eiga geggjað hús og svo bara einhvern krappí bíl

nr.3 þeir sem þekkja mig eitthvað ættu ekki að undrast á þessu, ég myndi ferðast til allra staða sem mig heftur alltaf langað til að skoða og að sjálfsögðu myndi ég bjóða vinum með.

nr.4 ég er stelpa og eins og flestar stelpur þá finnst mér gaman af að versla og eflaust ef maður ætti nóg af peningum þá myndi ég ábyggilega missa mig í flestum búðum sem ég sæi!!

nr.5 ja so eru það alltaf möguleiki að það væri hægt að nota e-ð í lýtlækna sem gætu strekkt, minnkað, stækkað, stinnt og bara lagfært sona mest allt, ég meina hver fílar ekki plast "lookið"???

nei ég segi svona.. ég er ekki svona kröfuhörð, myndi alveg sættast á litla krúttlega íbúð ásamt justin mínum og svo ef maður ætti svona mikið af peningum myndi maður ábyggilega bara eyða þeim í eintómt rugl!!

en ég bloggaði og mér finnst ég satt best að segja eiga hrós skilið fyrir það og því vil ég komment!!

- Hvað myndir þú gera ef þú ættir FULLT af peningum og mættir gera hvað sem er fyrir þá??


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 17:17:08 / Svandís

í vinnunni...

mér leiðist... segiði mér slúður eða bara e-ð skemmtilegt!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 19:43:24 / Svandís

Búmmm

á milli jóla og nýjárs gerast merkilegir hlutir hérna á íslandi.. mennirnir fá eitthvað stundarbrjálæði og æða á flugeldasölurnar eins og þeim sé borgað fyrir það. Þeir kaupa margir fyrir mörg hundruð þúsund sona til þess að vera flottarinn en hinn náunginn og segja svo öllum frá því til að monnta sig.
Og hvað gera þeir svo... þeir gjörsamlega missa sig og með brjálæðislegt blik í augunum og áfengi í blóði sprengja þeir alla peningana sína upp á gamlárskvöld, þannig að maður mætti halda að það geysaði stríð úti.
en ég ætla svo sem ekki að kvarta þar sem að mér finnst alveg ótrúlega gaman að horfa á alla brjálæðingana missa sig þannig að ég ætla bara að segja...

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 16:09:32 / Svandís

Þar sem að ég sendi engin jólakort í ár vil ég bara segja til þeirra sem ég þekki....

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári !

Þakka fyrir allar góðu stundirnar á árinu sem er að líða.

Hafið það sem allra best og borðið yfir ykkur á meðan þið getið!

Kær kveðja

            Svandís Ósk ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 11:42:31 / Heiðrún

prófin búin...!!!

jeii...nú er þessi önn liðin undir lok...og ekkert eftir nema að bíða eftir fjandans einkunnunum...nema Svandís, hún þarf ekki að bíða eftir neinum einkunnum...grrr! en jóhó...næstu dagar.....ég á náttla afmæli á laugardaginn....verð 19 ára gömul....:D síðan er ég að fara í bústað með vinnufélugum mínum síðan í sumar og síðan rennur upp stóra stundin hennar Svandísar, hún er að ÚTSKRIFAST 22.des.....It's going to be ledgendary (kann ekki að skrifa þetta) síðan eru bara jólin og stanslaus vinna milli hátíðanna síðan áramótin og svo byrjar öll sama rútínan hjá okkur flestum, skólinn! get ekki beðið eftir að klára þennann fjanda...það verður svo nice... en allavega ..vildi bara láta vita af mér.....og Gissur til hammó með 20 ára afmæliðí dag...:D enjoy the day.... en hef þetta ekki lengra í bili...þetta er komið gott.....!! kv Heiðrún afmælisbarn (á laugardaginn) p.s. SUIT UP! (þeir sem horfa á How I Met Your Mother fatta þetta, og þeir sem ekki horfa á þann hátt.....HORFIÐ Á HANN:...hann er snilld...)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 15:01:22 / harpa

Halló, halló

  • Ég allt í einu mundi lykilorðið:haha:
  • Og þá ákvað ég að deila því með ykkur!
  • Líka að ég næ að sleppa við lokapróf í spænsku! JEYY
  • Ég ætla líka að fara á pakkhúsið á morgun á hitta sætu dimmiterana!
  • Okey bæ!

HarpaÍs


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 12:11:54 / Svandís

Smá update

Ætli maður verði ekki að koma með smá update á lífi sínu þar sem að nú fara að gerast stórir hlutir.. geri þetta bara með punktabloggi  ;)

  • Skólinn er að verða búinn.. bara 4 virkir dagar eftir hjá útskriftarnemum
  • Tónleikar á fimmtudaginn með Magna, Dilana, Toby, Storm og húsbandinu kl. 20:00 í Laugardagshöll.. með Axel og Gullu :D


  • Dimmitering á föstudaginn 1. des. óvissuferð og fleira skemmtilegt


  • Vinna vinna og vinna


  • Kaupa jólagjafir og útskriftarföt


  • 22. Desember.. the big day!! ÚTSKRIFTIN


  • Aldrei aftur í fjölbrautaskóla :D


  • Jólin og allt sukkið


  • Vinna vinna vinna


  • Áramótin og ennþá meira sukk


Eins og þið sjáið þá er desember nokkuð stór mánuður hjá mér og aldrei að vita þó að það eigi eftir að bætast e-ð við s.s ein sumarbústaðaferð og fleira.

En ég veit ekkert ennþá hvað ég er að fara að gera eftir áramót, og satt best að segja er ég að fá smá "panic-attack" yfir að vera ekki með neitt pottþétt! Kannski maður ætti bara að skella þessu upp í kæruleisi og taka bara feitt lán og fara í heimsreisu?? Einhver til??

Allavega.. endilega komiði með tillögur hvað ég get farið að gera eftir áramót, því að ég er alveg clueless!!

- Svandís aka. sósa. aka. Psycho bitch from hell


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 11:34:49 / Svandís

LAG DAGSINS!!!

Wolfmother - Joker and the thief

(þeir sem hafa séð myndbandið ættu að vita ástæðuna) ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Myndir